Andreas Petreus

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. mars 2015 kl. 10:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. mars 2015 kl. 10:48 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Andreas Petreus kaupmaður fæddist 1777 í Danmörku, var á lífi 1829.
Westy Petreus eignaðist Eyjaverslunina með Peter Ludvig Svane eftir að verslunarleyfi Bjarna Sivertsens og félaga hans var afturkallað, en það gerðist með úrskurði danska rentukammersins 1792 og gengið var frá kaupum á birgðum 1798.
Svane stóð sjálfur að rekstrinum í Eyjum í nokkur ár, en mun hafa hætt, er hann gekk úr félagsskap þeirra Westy Petreusar 1803, en honum lauk formlega 1805.
Andreas Petreus tók við verslunarrekstrinum 1815. Magnús Ólafsson Bergmann var verslunarstjóri hjá honum um skeið, en Grímur Pálsson var tekinn við 1816.
Verslunin var rekin eins og útibú frá stórverslun Westy Petreus í Reykjavík.
Westy Petreus lést 1829 og var þá verslunin seld.
Andreas Petreus fluttist til Kaupmannahafnar með fjölskylduna 1829.

Kona Andreas Petreus var Andria Christena Hedervig Petreus, fædd Bech 1790.
Börn þeirra hér:
1. Sophie Catarine Petreus, f. 1816, á lífi 1829.
2. Christian H.V. Petreus, f. 1817, á lífi 1829.
3. Andria Gudrun Didericke Petreus, f. 4. janúar 1820 í Eyjum, á lífi 1829.


Heimildir