Þorkell Einarsson (Þorkelshjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. febrúar 2014 kl. 20:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. febrúar 2014 kl. 20:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þorkell Einarsson''' tómthúsmaður í Þorkelshjalli fæddist 1809 í Stokkseyrarsókn og lést 6. febrúar 1853.<br> Þorkell var í Eyvakoti í Stokksey...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorkell Einarsson tómthúsmaður í Þorkelshjalli fæddist 1809 í Stokkseyrarsókn og lést 6. febrúar 1853.

Þorkell var í Eyvakoti í Stokkseyrarsókn 1818. Hann var vinnumaður í Berjanesi í V-Landeyjum 1835, kom þaðan að Ofanleiti 1836, tómthúsmaður í Götu 1839, en varð bóndi í Eystra-Þorlaugargerði 1839.
Þorkell var í Þorkelshjalli 1840, Þorlaugargerðishjalli 1845 og aftur í Þorkelshjalli 1850.

Kona hans, (4. október 1839), var Þuríður Jónsdóttir húsfreyja frá Vilborgarstöðum, f. 21. maí 1815 , d. 24. júlí 1850.
Börn þeirra hér:
1. Guðmundur Þorkelsson, f. 15. janúar 1837, d. 22. janúar 1837 úr „Barnaveiki“.
2. Helga Þorkelsdóttir, f. 6. september 1838, vinnukona í Stóra-Gerði við andlát 22. júlí 1857.
3. Jóhann Þorkelsson, f. 22. október 1839, d. 29. október 1839 úr ginklofa.
4. Jón Þorkelsson, f. 30. maí 1841, d. 31. maí 1841 úr ginklofa.
5. Sigurður Þorkelsson, f. 12. ágúst 1842.
6. Guðrún Þorkelsdóttir, f. 10. janúar 1844, d. 14. október 1919.


Heimildir