Þórarinn Guðmundsson (Jaðri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2012 kl. 11:32 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2012 kl. 11:32 eftir Daniel (spjall | framlög) (Þórarinn Guðmundsson færð á Þórarinn Guðmundsson (Mandal))
Fara í flakk Fara í leit

Þórarinn Guðmundsson frá Mandal, fæddist í Frydendal í Vestmannaeyjum 13. janúar 1893 og lést 30. maí 1975. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson og Málfríður Erlendsdóttir. Eiginkona Þórarinns var Jónasína Runólfsdóttir Þórarinn var formaður í 30 ár, með Gústaf 1915-1916, Kristbjörgu 1917-1920, Úndínu 1921-1925, Skallagrím 1926-1927, Skíðblaðnir 1929-1933, Höfrung II 1934-1938, Happasæl 1939-1940 og Helga 1941-1944.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þórarinn:

Glöggur á veðra og græðisfar
greindur og snar í orðum
Þórarinn Helgu úr kvikum mar
hleður að efstu borðum.

Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1995.
  • Viðbót við heilmildir Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum