Þórður Einarsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. maí 2013 kl. 17:55 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. maí 2013 kl. 17:55 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þórður Einarsson''' sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1822 og lést 1860.<br> Móðir Þórðar var [[Anna Þorbj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórður Einarsson sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1822 og lést 1860.

Móðir Þórðar var Anna Þorbjörnsdóttir húsfreyja , f. 1798 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 11. mars 1849.
Þórður var fósturbarn í Presthúsum 1835. Hann var kvæntur sjómaður á Löndum 1845. Þar var kona hans Ástríður Jónsdóttir, barn þeirra Ingibjörg 2 ára og móðir Þórðar, Anna Þorbjörnsdóttir. Við manntal 1850 var hann enn á Löndum. Móðir hans var látin (d. 1849), en mætt var Guðrún dóttir þeirra Ástríðar. Við manntal 1855 var Þórður sjávarbóndi á Vilborgarstöðum og Gróa þriggja ára hafði bæst í barnahópinn.
Þórður var ekki á manntali 1860, enda mun hann þá vera látinn samkv. SMJ.
Þórður var í Herfylkingunni og var undirforingi í henni 1859.

Kona Þórðar var Ástríður Jónsdóttir húsfreyja á Löndum og Vilborgarstöðum, f. 28. júlí 1825 í Mýrdal, d. 3. janúar 1904.
Börn Þórðar og Ástríðar voru:
1. Ingibjörg Þórðardóttir, f. 1844, vinnukona á Vilborgarstöðum 1870.
2. Guðrún Þórðardóttir, f. 19. ágúst 1849, d. 12. júní 1921, húsfreyja í Vegg, kona Sigurðar Ólafssonar.
3. Guðrún Þórðardóttir, f. 18. febrúar 1853, d. 19. janúar 1935, húsfreyja í Hólshúsi, kona Ingvars Árnasonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.