„Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Kveðið í Slippnum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: <br> <br> <br> <center> Úr fórum Árna Árnasonar</center> <big><big><center> Kveðið í Slippnum</center></big></big> ::::::::::::Brynjólfur Einarsson: :::::::::::::Ský...)
 
m (Verndaði „Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Kveðið í Slippnum“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 10. september 2013 kl. 20:42




Úr fórum Árna Árnasonar


Kveðið í Slippnum


Brynjólfur Einarsson:
Skýfall
Vantar þurrk og vantar birtu,
vætan fellir mig.
Nú þyrftu allir aukaskirtu
utan yfir sig. —
Rosatíð
Ekki er búið enn að kanna
alla hluti í náttúrunni
né, hvort hugir margra manna
megna að breyta veðráttunni.


Mb. Björgvin datt í slippnum
Fjarskalega fór þetta illa með hann,
flatur lenti Björgvin niður á sleðann.
Reykdal sagði, og var það mjög til vona,
voðalega slæmt að fá hann svona.


Guðmundur á Háeyri
um sama.
Agalegur vindur vatt
veika grenihæla.
Báturinn hann Björgvin datt
í brautina hans Sæla.


Guðmundur á Háeyri
um brennivínshækkun.
Andskoti er Dauðinn dýr,
drjúg er stjórnarbótin.
Verðið fullar fjórar kýr,
fæddar um aldamótin.


Sögin góða
Eins og brygði ofan í lög
eik með harða kvisti,
beitti enginn betri sög,
bútaði jafnt og risti.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit