Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Bitavísur eða skipavísur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. september 2013 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. september 2013 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Bitavísur“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit




Bitavísur.
Það mun hafa verið forn siður að grafa vísur eða vísu
á bitafjölina í þeim skipum, sem gengu til fiskveiða.
Yfirleitt var efni vísunnar bæn til guðs
um farsæld fyrir skip og skipshöfn til lands og sjávar. (Heimaslóð).


Eldri skip í Eyjum.
Lukkureynir
Bitavísa hans var eftir Pál skálda Jónsson.
Höppum stýri á hnísu mýra flóði,
hættumein og slys ei nein ofbjóði
lægis hreini
Lukkureyni,
guð, sá eini góði.


Vestmannaey
Bitavísa hennar var eftir Pál skálda Jónsson.
Vænti ég fleyið Vestmannaey að heiti
vogar – skundi, er líður stund að - reiti
eignar heimi
aflann teymi
upp úr geimi
og heilum heim að fleyti.


Pétursbátur
Bitavísa hans var eftir Pál skálda Jónsson.
Aflakjör í fiskaför
fyrðum vel svo láti,
kjósum fyrstan formann Krist
fyrir Pétursbáti.


Friður
Árblíðu fær Friður
för, gæfu kjör hreppi,
Góðgjarni guð stjórni,
geim lægi, beim vægi,
mild höndin sæld sendi,
sið blessi, geð hressi,
lífs föður lof lýðir
láð virstu í náð Kristi.


Gideon
Milding heiti menn, sem veiti
á mastra dýri
lukku veiti á laxamýri
ljóssins anda kóngur stýri.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit