„Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Auðbjörg Ástrós, unga víf“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Auðbjörg Ástrós, unga víf“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 26. ágúst 2013 kl. 22:46




Úr fórum Árna Árnasonar


Auðbjörg Ástrós, unga víf


Auðbjörg Ástrós, unga víf,
Árna, sem er dóttir.
Frá henni hverfi hryggð og kíf,
en heilla veitist gnóttir.
Veitist henni viskan há,
velgengni með sanna.
Hljóti jafnan hringagná
hylli Guðs og manna.
Farsældar hún feti veg
fram til lífsins enda.
Gæskan Drottins guðdómleg
gef henn´i í dýrð hans lenda.
Henni, ef auðlegð hlotnist fá,
hjálpi þurfamönnum,
hún fær launin himnum á
heitin Guð af sönnum.
Hennar líði ævin öll
með ánægju og sóma.
Síðan Guðs í himna höll
hljót´i um eilífð ljóma.
Mitt svo þrjóta masið skal,
minnka óðar gnóttir.
Enda ég mitt óbreytt tal,
– Ingibjörg Jónsdóttir.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit