Ástríður Þorláksdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2014 kl. 17:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2014 kl. 17:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ástríður Þorláksdóttir (Vilborgarstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ástríður Þorláksdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1766 í Kornhól og lést 15 ágúst 1842 í Draumbæ.
Móðir hennar var Ólöf, f. 1737, d. 29. júlí 1776, Magnúsdóttir prests á Syðri-Fljótum, síðar í Stóra-Dalssókn u. Eyjafjöllum og konu hans Þórunnar „yngri“ Björnsdóttur.
Þorlákur faðir Ástríðar er ókunnur, e.t.v. síðari maður Ólafar.

Ástríður var vinnukona í Vesturholti u. Eyjafjöllum 1801, var húsfreyja á Vilborgarstöðum frá 1801, ól 3 börn og missti þau öll úr ginklofa. Sennilega hefur hún búið á Vilborgarstöðum til ársins 1819, þegar Árni lést. Hún var niðursetningur á Ofanleiti 1835 og lést líklega slíkur í Draumbæ 1842, skráð ekkja. Dánarorsök er skráð ginklofi, þ.e. stífkrampi.

Maður Ástríðar, (19. nóvember 1801), var Árni Guðmundsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1762, d. 21. apríl 1819. Hún var síðari kona hans.
Börn þeirra hér:
1. Guðmundur Árnason, f. 27. júni 1803, d. 2. júlí 1803 úr ginklofa.
2. Katrín Árnadóttir, f. í júlí 1805, d. 11. júlí úr ginklofa.
3. Stefán Árnason, f. 10. október 1808, d. 24. október 1808 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.