„Árni Þórarinsson (Eystri Oddsstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 6: Lína 6:

Árni var [[Aflakóngar|aflakóngur]] Vestmannaeyja 1918, 1920 og 1926.
Árni var [[Aflakóngar|aflakóngur]] Vestmannaeyja 1918, 1920 og 1926.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: [[Ritverk Árna Árnasonar/Árni Þórarinsson (Oddsstöðum)]]
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* ''Sjómannablaðið Víkingur''. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.}}
* ''Sjómannablaðið Víkingur''. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.}}

=Frekari umfjöllun=
'''Árni Guðbergur Þórarinsson''', [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], fæddist 25. maí 1896 og lést 18. janúar 1982.

Foreldrar hans voru [[Þórarinn Árnason]] bóndi á Norður-Fossi og í Vík í Mýrdal, síðar  bæjarfulltrúi og bóndi á [[Oddsstaðir eystri|Eystri Oddsstöðum]], f. 13. júní 1865, d. 22. febrúar 1926 og kona hans [[Elín Jónsdóttir (Eystri Oddsstöðum)|Elín Jónsdóttir]], f. 15. febrúar 1863 á Grímsstöðum í V-Landeyjum, d. 9. janúar 1950 í Eyjum.

Árni ólst upp hjá foreldrum sínum á Norður-Fossi í Mýrdal til 1903, í Vík 1903-1908. Fór hann þá með þeim til Vestmannaeyja og var hjá þeim þar 1910-1920. Hann var hafnsögumaður í Eyjum um skeið. Hann fluttist frá Eyjum 1945 og settist síðan að í Ytri-Njarðvík og var þar verkamaður.

Kona Árna (23. desember 1922) var [[Guðbjörg Þórðardóttir (Fífilgötu)|Guðbjörg Þórðardóttir]] húsfreyja, f. 31. ágúst 1894, d. 4. desember 1984.

Hjónin byrjuðu búskap sinn  í húsinu [[Reynir|Reyni]] við [[Bárustígur|Bárugötu]]. Þá fluttu þau að [[Stakkagerði-Vestra]] og bjuggu þar um skeið, en byggðu þá tveggja hæða hús við [[Fífilgata|Fífilgötu]] og áttu þar heimili þar til þau fluttu frá Eyjum árið 1948. Þau settust þá að í Ytri-Njarðvík og voru þar í um 20 ár, fluttu þá í Kópavog og áttu þar heima upp frá því.

Þau voru barnlaus en fóstruðu frænda Guðbjargar, [[Hilmar Bernótus Þórarinsson|Bernótus Þórarinsson]] [[Þórarinn Bernótusson|Bernótussonar]], f. 8. desember 1929, d. 14. júní 1992.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Árni er vel meðalmaður á hæð, svarthærður, fölur í andliti og magur, fremur fríður, sæmilega þrekinn á velli, liðlegur í öllum hreyfingum og snar, enda fyrr meir ágætis íþróttamaður og glímumaður, snjall og leikinn. Fremur er hann daufur í framkomu eða óframfærinn, stundum feiminn gagnvart fjöldanum, en stilltur og prúður í framkomu. Í fámenni naut hann sín mikið betur, t.d. í úteyjum. Þar var hann kátur og skemmtilegur, fjörmaður til allrar vinnu og lét vart sinn hlut eftir liggja.

Veiðimaður var hann í meðallagi, vantaði þjálfun, en áhugasamur og iðinn. Hann hætti veiðiferðum snemma, stundaði sjó og formennsku með ágætum orðstír. Flutti síðar til Reykjavíkur og þaðan í Njarðvíkur og býr þar nú. Árni var vinhollur maður og mikið ljúfmenni, sem eftirsjá var að úr Eyjum.

{{Árni Árnason}}
{{Heimildir|
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Manntöl.
*Íslendingabók.is.}}
[[Flokkur: Formenn]]
[[Flokkur: Formenn]]
[[Flokkur: Aflakóngar]]
[[Flokkur: Aflakóngar]]

Útgáfa síðunnar 13. ágúst 2013 kl. 15:12

Árni Þórarinsson, Oddsstöðum, fæddist að Fossi í Mýrdal 25. maí 1896 og lést 18. janúar 1982 í Kópavogi. Foreldrar hans voru Þórarinn Árnason og Elín Jónsdóttir. Árið 1908 flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja.

Eiginkona Árna var Guðbjörg Þórðardóttir frá Dal.

Árið 1915 byrjar Árni sjómennsku á Gideon hjá Eyvindi Þórarinssyni bróður sínum. Árni tók við formennsku á Goðafossi árið 1917 og var hann með hann til vertíðarloka ársins 1925.

Árni var aflakóngur Vestmannaeyja 1918, 1920 og 1926.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Árni Þórarinsson (Oddsstöðum)

Heimildir

• Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Myndir