Árni Þórarinsson (Eystri Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Árni Guðbergur Þórarinsson, Oddsstöðum, fæddist að Fossi í Mýrdal 25. maí 1896 og lést 18. janúar 1982 í Kópavogi. Foreldrar hans voru Þórarinn Árnason og Elín Jónsdóttir. Árið 1908 flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja.

Eiginkona Árna var Guðbjörg Þórðardóttir frá Dal.

Árið 1915 byrjar Árni sjómennsku á Gideon hjá Eyvindi Þórarinssyni bróður sínum. Árni tók við formennsku á Goðafossi árið 1917 og var hann með hann til vertíðarloka ársins 1925.

Árni var aflakóngur Vestmannaeyja 1918, 1920 og 1926.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Árni Þórarinsson (Oddsstöðum)


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.


Myndir