Guðrún Grímsdóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2015 kl. 19:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2015 kl. 19:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðrún Grímsdóttir (Gjábakka)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Grímsdóttir húsfreyja í Öxney á Breiðafirði fæddist 19. maí 1807 á Ólafsvöllum á Skeiðum og lést 20. apríl 1890.
Foreldrar hennar voru Grímur Pálsson verslunarstjóri, síðar prestur á Helgafelli í Snæf., f. 1775, d. 28. mars 1853, og kona hans Solveig Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 1775, d. 10. maí 1866.

Guðrún fluttist til Eyja með foreldrum sínum og var með þeim í Kornhól 1816, var hjá Guðrúnu ömmu sinni á Ofanleiti 1821 og 1822, en þá fluttist hún að Odda á Rangárvöllum.
Hún var vinnukona í Arnarbæli í Ölfusi 1835. Þar var Guðlaugur Jónsson, sonur sr. Jóns Matthíassonar (Matthiesen) og Ingibjargar Pálsdóttur húsfreyju, en hún var föðursystir Guðrúnar. Þau Guðlaugur Jónsson og Guðrún voru því systkinabörn.
Hún var húsfreyja í Öxney á Breiðafirði 1840 með Guðlaugi og 3 börnum þeirra. Hjá þeim var þá Solveig móðir hennar, en hún giftist aftur árið eftir að Breiðabólstað á Skógaströnd.
Þau Guðlaugur voru þar enn 1855. Guðlaugur lést 1863 og Guðrún 1890.

Maður hennar var Guðlaugur Jónsson Mathiesenbóndi, f. 2. september 1815, d. 12. febrúar 1863.
Börn þeirra hér:
1. Jóhann Guðlaugsson, f. 1836, drukknaði 26. október 1863, ókv. og barnlaus.
2. Ingibjörg Guðlaugsdóttir húsfreyja í Gröf í Mosfellssveit, f. 19. júní 1837, d. 6. september 1922.
3. Jón Guðlaugsson, f. 14. nóvember 1838, d. 23. maí 1849.
4. Solveig Guðlaugsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. mars 1852, d. 30. júlí 1942.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.