Jón Jónsson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. mars 2015 kl. 11:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. mars 2015 kl. 11:49 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Jónsson vinnumaður á Vesturhúsum fæddist 1816 í Mýrdal og drukknaði 17. júní 1864.
Foreldrar eru ókunnir.

Jón var vinnumaður á Eyjarhólum í Mýrdal 1844, fluttist þaðan til Eyja á því ári.
Hann var fyrirvinna (ráðsmaður) hjá Elínu Guðmundsdóttur í Steinmóðshúsi 1844-1850, vinnumaður í Dölum 1851-1852, á Vesturhúsum 1853-1855, í Smiðjunni 1856, á Oddsstöðum 1857, á Búastöðum 1859-1860, á Vesturhúsum 1861-1864.
Jón drukknaði við Elliðaey 1864 ásamt tveimm öðrum.
Hann var ókvæntur og barnlaus.

Þeir, sem fórust, voru:
1. Helgi Jónsson bóndi í Kornhól faðir Jóasar í Nýjabæ, 58 ára, f. 9. júlí 1806.
2. Oddur Jónsson vinnumaður í Ömpuhjalli, 37 ára, f. 28. febrúar 1828.
3. Jón Jónsson, 47 ára, f. 1816.


Heimildir