Páll Einarsson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. mars 2015 kl. 21:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. mars 2015 kl. 21:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Páll Einarsson''' tómthúsmaður á Löndum fæddist 1823 í Öræfum og lést fyrir árslok 1870. <br> Foreldrar hans voru Einar Pálsson bóndi á Hofi í Öræfum, en sí...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Páll Einarsson tómthúsmaður á Löndum fæddist 1823 í Öræfum og lést fyrir árslok 1870.
Foreldrar hans voru Einar Pálsson bóndi á Hofi í Öræfum, en síðast á Undirhrauni í Meðallandi, f. 1796 í Mörk á Síðu, d. 6. júní 1851 á Undirhrauni, og fyrri kona hans Steinunn Vigfúsdóttir frá Hnappavöllum í Öræfum, húsfreyja, f. um 1801, d. 11. júní 1843.

Páll var með foreldrum sínum til 1843, var hjá föður sínum í Meðallandi 1843-1847, vinnumaður í Bakkakoti þar 1847-1848, hjá föður sínum á Undirhrauni þar 1848-1849.
Hann fluttist að Hólshúsi 1849 úr V-Skaft., var vinnumaður þar til ársins 1851, vinnumaður í Götu 1852, tómthúsmaður á Löndum 1854.
Hann fluttist frá Stakkagerði í Holtssókn 1864, kvæntur vinnumaður, 35 ára.

I. Kona hans, (13. maí 1854, skildu samvistir), var Þuríður Sigurðardóttir húsfreyja á Löndum f. 23. september 1821, d. 8. mars 1910.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.