Einar Þorsteinsson (Kastala)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. mars 2015 kl. 14:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2015 kl. 14:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Einar Þorsteinsson (Kastala)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Einar Þorsteinsson sjómaður og tómthúsmaður í Kastala fæddist 1769 á Vatnsleysu í Biskupstungum og lést 1. ágúst 1837.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Bjarnason bóndi á Miðfelli í Hrunamannahreppi, f. 1749, d. 1801, og kona hans Ingibjörg Þorláksdóttir húsfreyja, f. 1752, d. 11. febrúar 1828.

Einar var kvæntur sjómaður í Reykjavík 1801.
Hann var kominn til Eyja 1812 og var þá húsmaður í Stakkagerði með Þórdísi konu sinni og Magdalenu 15 ára, tómthúsmaður í Kastala 1815-1820 og með honum var Þórdís kona hans, - og Ingibjörg móðir hans 1815.
Þau fluttust að Grímsstöðum í Landeyjum 1820 og gerðust síðan bændur í Vestra-Fróðholti í V-Landeyjum.
Hjónin fluttust síðar til Magdalenu dóttur sinnar og voru hjá henni á Grímsstöðum í Landeyjum 1835.
Einar lést 1837.

Kona Einars var Þórdís Pálsdóttir húsfreyja í Kastala, f. 18. júlí 1777, d. 11. október 1863.
Barn þeirra hér:
1. Magdalena Einarsdóttir húsfreyja á Ytri-Hól í V-Landeyjum og víðar, f. 1798, d. 20. október 1860.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson og fleiri. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.