Christian Jakob Kemp (Godthaab)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. febrúar 2015 kl. 13:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. febrúar 2015 kl. 13:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Christian Jakob Kemp (Godthaab)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Christian Jakob Kemp verslunarstjóri í Godthaab fæddist 1802.
Hann kom til Eyja frá Kaupmannahöfn 1833, en kona hans og tvö börn 1834. Með konu hans komu Ane Johanne Grüner þjónustustúlka, síðar nefnd Madama Roed í Frydendal, og Johanne Ludvike Kemp systir verslunarstjórans.

Hjónin eignuðust 4 börn í Eyjum, en misstu tvö þeirra úr ginklofa og eitt barn 5 mánaða úr „krampa“, líklega ginklofi.
Þau munu hafa flust frá Eyjum 1839. Á því ári var Jess Thomsen Christensen orðinn verslunarstjóri í Godthaab.

Kona Christians Jakob Kemp var Erasmine Elisabeth Kemp húsfreyja, f. 1802.
Börn þeirra hér:
1. Gyrette Kemp, f. 1831.
2. Christian Kemp, f. 1832.
Börn þeirra fædd í Eyjum voru
3. Frederik Kemp, f. 29. janúar 1835, d. 19. febrúar 1835 úr ginklofa.
4. Doris Kemp, f. 8. október 1836, á lífi 1838.
5. Helge Kemp, f. 1. september 1837, d. 5. október 1837 úr ginklofa.
6. Thora Elisabeth Kemp, f. 4. september 1838, d. 7. febrúar 1839 úr „krampa“, líklega ginklofi.


Heimildir