Kolbeinn Ásláksson (Tjarnarkoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. janúar 2015 kl. 17:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. janúar 2015 kl. 17:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Kolbeinn Ásláksson''' bóndi í Tjarnarkoti í A-Landeyjum, síðast í Danska-Garði fæddist 1724 og lést 31. mars 1785.<br> Foreldrar hans voru Áslákur Sigur...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kolbeinn Ásláksson bóndi í Tjarnarkoti í A-Landeyjum, síðast í Danska-Garði fæddist 1724 og lést 31. mars 1785.
Foreldrar hans voru Áslákur Sigurðsson bóndi í Holtshverfi u. Eyjafjöllum 1729, f. 1695 og Steinunn Jónsdóttir húsfreyja þar 1729, f. 1685.

Kolbeinn var 5 ára með foreldrum sínum í hjáleigu í Holtshvefi 1729, bjó í Tjarnarkoti 1762 og 1767. Hann var síðast í Eyjum og lést í Danska-Garði 1785.

I. Ókunn kona, f. 1715.
Börn þeirra
1. Sonur, f. 1749.
2. Jón Kolbeinsson húsmaður í Litlakoti á Miðnesi, f. 1752, d. 20. júlí 1818.

II. Barnsmóðir Kolbeins var Sigríður Jónsdóttir vinnukona á Bryggjum, f. 1743, d. 6. nóvember 1820.
Barn þeirra var
3. Ingimundur Kolbeinsson bóndi í Miðey í A-Landeyjum, f. 1772, d. 9. maí 1856, faðir Ingimundar í Miðey, en hann var faðir Sigurðar Ingimundarsonar bátsformanns á Skjaldbreið, Árna Ingimundarsonar bátsformanns á Brekku, Helga Backmanns bátsformanns og Ingiríðar Ingimundardóttur húsfreyju í Fagradal konu Odds Jónssonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.