Oddur Eyjólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2006 kl. 10:13 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2006 kl. 10:13 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Oddur Eyjólfsson var prestur að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum frá 1674 til 1732. Foreldrar hans voru Eyjólfur Narfason á Þorláksstöðum í Kjós og kona hans Ragnheiður Oddsdóttir. Hann lærði í Skálholtsskóla, fékk veitingu fyrir Kirkjubæjarprestakalli 1674 og þjónaði því til æviloka 1732 og hafði þá þjónað prestakallinu í 58 ár. Hann var orðinn 83 ára gamall er hann andaðist.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.