Steinn Guðmundsson (Steinshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. nóvember 2014 kl. 19:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. nóvember 2014 kl. 19:34 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinn Guðmundsson tómthúsmaður í Steinshúsi í Skagnesi í Mýrdal, skírður 13. júlí 1791 og lést 1. janúar 1829.
Foreldrar hans voru Guðmundur Árnason bóndi á Skagnesi, f. um 1760, d. 1800, og kona hans Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1760, á lífi 1835.

Steinn var með ekkjunni móður sinni á Skagnesi 1801, var í Kerlingardal í Mýrdal 1805, vinnumaður á Kaldrananesi þar 1816.
Hann fór til Eyja 1817, var þar vinnumaður á Miðhúsum 1822, húsmaður í Dölum 1823 og 1824, en var kominn í Steinshús 1826. Hann lést þar 1829 og Guðrún varð bráðkvödd þar 6 vikum síðar.

Kona Steins var Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1786, d. 16. febrúar 1829.
Börn þeirra hér:
1. Þuríður Steinsdóttir, f. 14. nóvember 1820, d. 22. nóvember 1820 „af barnaveiki“, (mun vera ginklofi) .
2. Guðmundur Steinsson, f. 6. júní 1823, d. 17. júní 1823 „af barnaveikinni“, (mun vera ginklofi).
3. Þuríður Steinsdóttir, f. 11. júní 1824, d. 18. júní 1824 „af kæfandi sjúkdómi“ , (líklega stífkrampi, ginklofi).
4. Jónas Steinsson, f. 16. júlí 1826, d. 26. júlí 1826 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
5. Þuríður Steinsdóttir, f. 24 nóvember 1827, d. 29. nóvember 1827 úr „Barnaveiki“.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.