Guðmundur Jesson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. maí 2014 kl. 21:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. maí 2014 kl. 21:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Guðmundur Jesson verkamaður á Litlu-Grund, fæddist 13. nóvember 1867 í Nýborg og lést 19. apríl 1931.
Foreldrar hans voru Jes Nicolai Thomsen verslunarstjóri í Godthaabsverslun, f. 7. nóvember 1840, d. 30. janúar 1919, og barnsmóðir hans Elín Steinmóðsdóttir vinnukona, f. 1836.

Hálfsystir Guðmundar, samfeðra, var Anna Petrea Thomsen kona Friðriks Gíslasonar frá Hlíðarhúsi.

I. Barnsmóðir hans var Kristín Ólafsdóttir, þá í Júlíushaab.
Barnið var
1. Guðríður Guðmundsdóttir, f. 12. maí 1893, d. 24. júní 1984.

Guðmundar er getið sem bjargveiðimanns án umsagnar á blöðum Árna Árnasonar símritara.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir