Jón Þorkelsson (Þorkelshjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. maí 2014 kl. 17:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. maí 2014 kl. 17:46 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorkelsson sjómaður frá Þorkelshjalli fæddist 1833 í Fljótshlíð og fórst með þilskipinu Helgu í apríl 1867.

Móðir hans var Helga Þorsteinsdóttir vinnukona á Bergþórshvoli 1832, í París 1860, f. 26. október 1805, d. 24. desember 1869.
Faðir Jóns var Þorkell Einarsson í Þorlaugargerðishjalli 1845.

Jón var 2 ára tökubarn á Breiðabólstað í Fljótshlíð 1835 með móður sinni, með móður sinni í Álfhólum í V-Landeyjum 1840, í Þorkelshjalli hjá Þorkeli Einarssyni, skráður „hans barn“ 1841, 1842, 1843 og 1844, finnst ekki svo að víst sé 1845, líklega rangfeðraður í Þorlaugagerðishjalli hjá föður sínum Þorkeli Einarssyni, sagður Einarsson, 13 ára.
Hann var 17 ára léttadrengur í Ólafshúsum 1850, vinnumaður á Oddsstöðum 1855, vinnumaður á verslunarstaðnum Juliushaab 1860, til heimilis í Túni við andlát.
Hann fórst með þilskipinu Helgu 1867.


Heimildir