Elín Jónsdóttir (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. maí 2014 kl. 10:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. maí 2014 kl. 10:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Elín Jónsdóttir (Oddsstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Elín Jónsdóttir frá Oddsstöðum, húsfreyja á Helluvaði á Rangárvöllum, fæddist 10. nóvember 1856 og lést 12. apríl 1911.
Foreldrar hennar voru Jón Þorgeirsson bóndi á Oddsstöðum, f. 1808, d. 6. júní 1866, og síðari kona hans Margrét Halldórsdóttir húsfreyja, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919.

Elín var fjögurra ára með foreldrum sínum á Oddsstöðum 1860, 15 ára niðursetningur í Eyjum 1870.
Hún var vinnukona hjá Aagaard sýslumanni og konu hans Agnesi. Agnes skrifar um styrkjandi samskipti við Elínu í leiðindum sínum í fásinninu í Eyjum á árum sínum þar (sjá heimildir).
Þau Jónas giftu sig 1882 og hófu búskap á Helluvaði 1883. Hún bjó þar til dánardægurs 1911, en Jónas bjó þar til ársins 1923.

Maður Elínar, (6. janúar 1882), var Jónas Ingvarsson bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. september 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924 á Helluvaði.
Börn Elínar og Jónasar voru:
1. Kristín Rósa Jónasdóttir, f. 15. nóvember 1882, d. 1. júní 1958, gift Jóni Sigmundssyni sjómanni í Reykjavík, en síðar Guðmundi Andréssyni gullsmið í Reykjavík.
2. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja í Skuld, f. 23. nóvember 1883, d. 28. apríl 1960, gift Sigurði Pétri Oddssyni útgerðarmanni, f. 28. mars 1880, d. 10. maí 1945.
3. Júlíana Jónasdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. júlí 1891, gift Ísleiki Þorsteinssyni söðlasmið.
4. Jónína Jónasdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. mars 1895, gift Jóni Sigurðssyni skipstjóra.
5. Jónas Jónasson skósmiður í Reykjavík, f. 27. september 1897, fyrst kvæntur Mínervu Jósteinsdóttur, síðan Þórunni Hjálmarsdóttur, en síðast Gertrud Ritzhaupt.


Heimildir