Guðjón Jónsson eldri (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. mars 2014 kl. 21:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. mars 2014 kl. 21:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðjón Jónsson''' eldri, bóndi í Dölum, fæddist 4. ágúst 1862 og lést 29. júní 1900.<br> Foreldrar hans voru [[Jón Þorkelsson (Grímshjalli)|Jón Þorkelsso...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Jónsson eldri, bóndi í Dölum, fæddist 4. ágúst 1862 og lést 29. júní 1900.
Foreldrar hans voru Jón Þorkelsson tómthúsmaður og sjómaður í Grímshjalli, f. 18. september 1826, d. 10. september 1864, og kona hans Sesselja Arnoddsdóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1827, d. 22. júní 1888.

Föðurmóðir Guðjóns var Gyðríður Sveinsdóttir. Föðursystkini Guðjóns í Eyjum voru því:
1. Sveins Hjaltasonar bóndi og hafnsögumaður á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júní 1879.
2. Sigríður Hjaltadóttir vinnukona í Nýjabæ, f. 9. ágúst 1818, d. 9. desember 1880.
3. Filippus Hjaltason vinnumaður í Nöjsomhed, f. 12. maí 1820, d. 15. maí 1847 á Gjábakka.
4. Eyjólfur Hjaltason tómthúsmaður, bókbindari á Löndum, f. 19. desember 1821, d. 30. desember 1884.
og albróðir
5. Guðmundur Þorkelsson vinnumaður á Vesturhúsum, f. 2. mars 1828, d. 7. mars 1859.

Guðjón var með ekkjunni móður sinni í Grímshjalli 1870, 18 ára vinnumaður á Ofanleiti 1880.
Hann var bóndi í Dölum 1890 með Margréti og sonunum Sóphusi Guðjóni 3 ára og Guðjóni eins árs.
Guðjón lést 1900.

Kona Guðjóns, (16. október 1887), var Margrét Sigurðardóttir frá Steinsstöðum, f. 28. júní 1855, d. 23. desember 1893.
Börn þeirra hér:
1. Sophus Guðjón Guðjónsson, f. 24. desember 1886. Hann var með foreldrum sínum 1890.
2. Sigurjón Guðjónsson, f. 10. desember 1888, d. 17. október 1895.


Heimildir