Árni Hákonarson (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. mars 2014 kl. 17:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. mars 2014 kl. 17:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Árni Hákonarson (Stóra-Gerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Árni Hákonarson bóndi í Stóra-Gerði fæddist 1741 og drukknaði 16. febrúar 1793.
Faðir hans var Hákon Sigurðsson bóndi í Varmahlíð u. Eyjafjöllum 1715, en móðir hans er ókunn.

Árni fórst 16. febrúar 1793 ásamt sex öðrum.
Úr Djáknaannálum 1793: „10 manna skiptapi í Vestmannaeyjum, en 6 náðust lífs.“

I. Barnsmóðir Árna var Ragnhildur Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 1760, d. 24. júlí 1843, þá kona Bjarna Sigvaldasonar á Vesturhúsum, en hann var þá fangi í Reykjavík.
Börn þeirra hér:
1. Jón Árnason, f. 6. maí 1792, tvíburi, d. 9. maí 1792 úr ginklofa.
2. Ingibjörg Árnadóttir, f. 6. maí 1792, tvíburi, d. 9. maí 1792 úr ginklofa.

II. Kona Árna, (6. maí 1792), var Ingigerður Árnadóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. um 1764 að Lækjarbakka í Mýrdal, d. 20. maí 1833 í Nýjabæ í Eyjum.
Barn þeirra var
3. Þorbjörg Árnadóttir, f. 14. apríl 1793, d. 20. s. mán. úr ginklofa.


Heimildir