Margrét Gísladóttir (Görðum við Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. mars 2014 kl. 15:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. mars 2014 kl. 15:32 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Gísladóttir, Görðum við Kirkjubæ, fæddist í Götu í Holtum, Rang. 20. nóvember 1822 og lést í Spanish Fork í Utah, Bandaríkjunum 14. júní 1914.
Foreldrar hennar voru Gísli Andrésson í Görðum við Kirkjubæ og fyrsta kona hans Sigríður Guðmundsdóttir.
Hún var hálfsystir, (samfeðra), Þorgerðar Gísladóttur, fyrri konu Sigurðar Sigurfinnssonar hreppstjóra.

Maður Margrétar var Samúel Bjarnason bóndi á Kirkjubæ, síðar prestur mormóna í Eyjum og að síðustu bóndi í Spanish Fork í Utah.
Barn í Eyjum:
Meðan þau bjuggu í Jónshúsi einuðust þau barn, Sigríði Samúelsdóttur 14. júlí 1850, sem dó 24. nóvember 1851.
Árið 1850 eru þau Margrét skráð í Jónshúsi, bæði 28 ára. Þar eru einnig Margrét Gísladóttir 53 ára, móðir Samúels, og maður hennar Guðmundur Guðmundsson 55 ára.

Margrét fór með manni sínum Samúel Bjarnasyni til Utah 1854, kom þangað 1855 og gerðist bóndi með honum. Hann lést 1890, en hún lifði til 1914.
Þau voru fyrstu íslensku hjónin, sem fluttust til Utah.
Yfir gröf hvors þeirra í Spanish Fork er minnisvarði með skrift: 1st Icelander 1855.


Heimildir