Fídes Pétursdóttir (Vilborgarstöðum)
Fídes Pétursdóttir fæddist 21. nóvember 1851 í Eyjum og lést 6. október 1894.
Foreldrar hennar voru Pétur Halldórsson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 1823, d. 5. febrúar 1870, og kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1824, d. 24. mars 1868.
Fídes var með foreldrum sínum á Vilborgarstöðum 1860, vinnukona í Draumbæ 1870 og 1880. Hún fór til Seyðisfjarðar 1886 og var vinnuhjú í Neshjáleigu í Loðmundarfirði 1890.
Hún lést 1894.
Barnsfaðir hennar var Arnfinnur Jónsson, fæddur 21. júlí 1862, látinn í Kanada 13. júní 1899.
Barn þeirra var
Ingunn Katrín Arnfinnsdóttir húsfreyja, f. 1888, d. 1958.
Ingunn Katrín átti börn með tveim mönnum og á hún fjölda afkomenda. (Sjá bókina Arnes – síðasti útilegumaðurinn eftir Kristinn Helgason).
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Arnes – síðasti útilegumaðurinn. Kristinn Helgason. Fjölvaútgáfa 1997.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.