Steinn Guðmundsson (Steinshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 19:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 19:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Steinn Guðmundsson''' tómthúsmaður í Steinshúsi í Skagnesi í Mýrdal, skírður 13. júlí 1791 og lést 1. janúar 1829.<br> Foreldrar hans voru Guðmundur Árnason...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Steinn Guðmundsson tómthúsmaður í Steinshúsi í Skagnesi í Mýrdal, skírður 13. júlí 1791 og lést 1. janúar 1829.
Foreldrar hans voru Guðmundur Árnason bóndi á Skagnesi, f. um 1760, d. 1800, og kona hans Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1760, á lífi 1835.

Steinn var með ekkjunni móður sinni á Skagnesi 1801, var í Kerlingardal í Mýrdal 1805, vinnumaður á Kaldrananesi þar 1816.
Hann fór til Eyja 1817, var þar vinnumaður á Miðhúsum 1822, húsmaður í Dölum 1823 og 1824, en var kominn í Steinshús 1826. Hann lést þar 1829 og Guðrún varð bráðkvödd þar 6 vikum síðar.

Kona Steins var Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1786, d. 16. febrúar 1829.
Börn þeirra hér:
1. Þuríður Steinsdóttir, f. 14. nóvember 1820, d. 22. nóvember 1820 „af barnaveiki“, (mun vera ginklofi) .
2. Guðmundur Steinsson, f. 6. júní 1823, d. 17. júní 1823 „af barnaveikinni“, (mun vera ginklofi).
3. Þuríður Steinsdóttir, f. 11. júní 1824, d. 18. júní 1824 „af kæfandi sjúkdómi“ , (líklega stífkrampi, ginklofi).
4. Jónas Steinsson, f. 16. júlí 1826, d. 26. júlí 1826 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.