Helga Jónsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 18:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 18:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Helga Jónsdóttir''' húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 25. febrúar 1803 á Önundarstöðum í A-Landeyjum og lést 6. apríl 1839.<br> Foreldrar hennar voru Jón ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 25. febrúar 1803 á Önundarstöðum í A-Landeyjum og lést 6. apríl 1839.
Foreldrar hennar voru Jón Diðriksson bóndi í Gularáshjáleigu í A-Landeyjum, f. 1765, d. 21. október 1827, og kona hans Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1767, d. 31. júlí 1816.

Helga fluttist til Eyja ásamt Jóni 1831 „til að giftast“. Þar bjuggu þau Jón 1835.
Hún ól 4 börn, sem dóu úr ginklofa innan einnar viku frá fæðingu.
Hún lést 1839 „ af kæfi ....krampa“.

Maður Helgu, (1831), var Jón Ögmundsson bóndi, f. Börn þeirra hér:
1. Sigurður Jónsson, f. 13 . júní 1832, d. 19. júní 1832 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
2. Sigríður Jónsdóttir, f. 27. október 1833, d. 2. nóvember 1833 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
3. Jón Jónsson, f. 28. desember 1834, d. 3. janúar 1835 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
4. Jónas Jónsson, f. 27. nóvember 1835, d. 2. desember 1835 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.