Ísak Jakob Jónsson (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. desember 2013 kl. 19:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. desember 2013 kl. 19:23 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ísak Jakob Jónsson bóndi í Norðurgarði fæddist 1833, á lífi 1890.
Faðir hans var Jón bóndi á Hrútafelli og Helgusöndum u. Eyjafjöllum, f. 1801 í Breiðavíkursókn, d. 17. nóvember 1869, Brynjólfsson.
Móðir Ísaks Jakobs var Þóra húsfreyja, f. 1799, d. 4. mars 1864, Jónsdóttir bónda á Hrútafelli, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafelli, Eiríkssonar bónda, líklega á Leirum u. Eyjafjöllum, f. 1736, Jónssonar og konu Eiríks á Leirum, Katrínar húsfreyju, f. 1725, d. 19. janúar 1805, Jónsdóttur.

Ísak Jakob var 3 ára með foreldrum sínum og 5 systkinum á Hrútafelli u. Eyjafjöllum 1835, með þeim á Helgusöndum þar 1845 og 1850.
1860 var hann kominn að Norðurgarði með Guðrúnu Ólafsdóttur konu sinni og börnunum Steinunni 5 ára og Jóni 2 ára.
1870 var hann kvæntur vinnumaður í Ömpuhjalli án fjölskyldu.
Hann var skilinn vinnumaður í Mandal 1880.
1890 var hann 59 ára fiskvinnslumaður í Ísakshúsi. Þar var Steinunn dóttir hans 34 ára vinnukona og sonur hennar Guðjón Eggertsson 9 ára.

I. Barnsmóðir Ísaks Jakobs var Valgerður Jónsdóttir frá Norðurgarði.
Barnið var
1. Hjálmar Ísaksson í Kuðungi, f. 17. september 1860, d. 3. október 1929.

II. Kona Ísaks Jakobs bónda, (skildu), var Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 1833.
Börn þeirra hér:
2. Steinunn Ísaksdóttir húsfreyja og verkakona, f. 22. október 1856, d. 31. janúar 1920.
3. Jón Ísaksson sjómaður, f. 11. mars 1859, d. 20. ágúst 1890, hrapaði í Ystakletti.
4. Gísli Dagbjartur Ísaksson, f. 23. september 1861, d. 24. júlí 1890.
5. Hjálmfríður Björg Ísaksdóttir húsfreyja á Bergsstöðum 1910, f. 4. október 1865, d. 13. maí 1953.


Heimildir