Fídes Pétursdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. október 2013 kl. 21:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. október 2013 kl. 21:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Fídes Pétursdóttir''' fæddist 21. nóvember 1851 í Eyjum og lést 6. október 1894.<br> Foreldrar hennar voru Pétur Halldórsson ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Fídes Pétursdóttir fæddist 21. nóvember 1851 í Eyjum og lést 6. október 1894.
Foreldrar hennar voru Pétur Halldórsson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 1823, d. 5. febrúar 1870, og kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1824, d. 24. mars 1868.
Fídes var með foreldrum sínum á Vilborgarstöðum 1860, vinnukona í Draumbæ 1870 og 1880. Hún fór til Seyðisfjarðar 1886 og var vinnuhjú í Neshjáleigu í Loðmundarfirði 1890.
Hún lést 1894.

Barnsfaðir hennar var Arnfinnur Jónsson, fæddur 21. júlí 1862, látinn í Kanada 13. júní 1899.
Barn þeirra var
Ingunn Katrín Arnfinnsdóttir húsfreyja, f. 1888, d. 1958.
Ingunn Katrín átti börn með tveim mönnum og á hún fjölda afkomenda. (Sjá bókina Arnes – síðasti útilegumaðurinn eftir Kristinn Helgason).


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Arnes – síðasti útilegumaðurinn. Kristinn Helgason. Fjölvaútgáfa 1997.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.