Þuríður Högnadóttir (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. október 2013 kl. 20:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. október 2013 kl. 20:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þuríður Högnadóttir''' húsfreyja í Kornhól fæddist 1767 og lést 12. september 1801.<br> Aðfaranótt 10. febrúar 1790 var framið rán á Miðhúsum (sjá ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þuríður Högnadóttir húsfreyja í Kornhól fæddist 1767 og lést 12. september 1801.
Aðfaranótt 10. febrúar 1790 var framið rán á Miðhúsum (sjá Miðhúsaránið). Var Bjarni Björnsson bóndi á Vilborgarstöðum talinn viðriðinn það og var dæmdur til þriggja ára fangavistar í Reykjavík 13. júlí 1791.
Þar kynntist hann Þuríði Högnadóttur, sem dæmd hafði verið fyrir fjögur frillulífsbrot, þ.e. barneignir án hjónabands.
Að lokinni vist bjuggu þau saman í Hólakoti í Reykjavík.
Bjarni æskti skilnaðar við konu sína Ingibjörgu Hreiðarsdóttur vegna hórdómsbrots hennar, en hún hafði eignast barn með Páli Guðmundssyni á Vilborgarstöðum 1792. Fékk hann skilnað frá henni 16. júlí 1798.

I. Einn af barnsfeðrum Þuríðar var Einar Þorvaldsson skósmiður í Reykjavík.
Barn þeirra var
Jónas Einarsson Vestmann formaður, f. 1798, d. 1834.

II. Maður Þuríðar í Eyjum, (14. maí 1799), var Bjarni Björnsson, síðar á Miðhúsum, f. 1752, d. 23. nóvember 1827.
Þau fluttust fljótlega til Eyja og bjuggu í Kornhól. Börn Þuríðar fylgdu þeim til Eyja. Sonur hennar Jónas Einarsson, síðar Vestmann varð síðar formaður á Þurfalingi og lést eftir að bátnum hlekktist á í Leiðinni 5. mars 1834.
Börn þeirra hér:
1. Kristján Bjarnason, f. 30. janúar 1800, d. 5. febrúar 1801.
2. Kristján Bjarnason, dáinn 16. febrúar 1801, 6 daga gamall.
Stjúpbörn Bjarna, börn Þuríðar:
3. Jóhanna Jónsdóttir, f. 1791.
4. Jón Jónsson, f. 1792.
5. Jónas Einarsson Vestmann formaður, f. 1798, d. 1834.


Heimildir