Ritverk Árna Árnasonar/Arinbjörn Ólafsson (Garðinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júlí 2013 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júlí 2013 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Arinbjörn Axel Ólafsson''' fæddist 24. október 1895 og lést 13. apríl 1960.<br> Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri, f. 17. ágúst 1870, d. 5. á...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Arinbjörn Axel Ólafsson fæddist 24. október 1895 og lést 13. apríl 1960.
Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri, f. 17. ágúst 1870, d. 5. ágúst 1913 og kona hans Sigríður Eyþórsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1872, d. 15. febrúar 1942.

Arinbjörn var með foreldrum sínum og systkinum í Ólafshúsi í Vík í Mýrdal 1901.
Hann var 15 ára með fjölskyldunni í Sjávarborg í Borgarnesi 1910.
Við manntal 1920 var hann á Borg, bókhaldari, rak kvikmyndasal. Hann var eigandi að Borg að hálfu.
Hann fluttist síðar til Hafnarfjarðar.

Arinbjörn var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona, (skildu), Arinbjarnar Axels var Ragna Þorvarðardóttir, f. 18. janúar 1899, d. 16. mars 1991.
Barn þeirra var:
Ólafur Högni Arinbjarnarson bifreiðarstjóri, f. 15. júní 1927, d. 26. nóvember 1991, ættleiddur af Agli Jónassyni í Njarðvík og konu hans, Sigurbjörgu Ögmundsdóttur, en Ragna og Sigurbjörg voru systradætur.

II. Síðari kona Arinbjarnar var Guðný Halldórsdóttir Ásmundssonar Jónssonar frá Norðfirði, f. 1. febrúar 1911, d. 24. mars 1982. Þau voru búsett í Hafnarfirði. Þau áttu ekki börn saman.


Heimildir