Blik 1969/Í húminu

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. september 2012 kl. 17:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. september 2012 kl. 17:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1969



Jarþrúður P. Johnsen:


Í Húminu


Þetta ljóð orti frú Jarþrúður Johnsen á sínum tíma og samdi síðan lag við það, sem hlotið hefur viðurkenningu fyrir fegurð.


(Lag: Það hryggir svo margt)


Í húminu hljótt hún grætur
og hugsar um liðinn dag.
Í djúpinu Ránardætur
dansa rammaslag.
En blessuð vertu bjartsýn,
því að báturinn færir þér heim
þann eina, sem þú elskar
í alheims víðum geim.