Sólveig Pálsdóttir
Sólveig Pétursdóttir var fædd í Vestmannaeyjum þann 8. október 1821. Foreldrar hennar voru séra Páll Jónsson og Guðrún Jónsdóttir. Sólveig var með þeim fyrstu íslensku konunum sem fóru til Danmerkur til að verða ljósmæður. Hún útskrifaðist árið 1843 frá Fæðingarstofnuninni í Kaupmannahöfn og var skipuð sama ár sem ljósmóðir í Vestmannaeyjum. Þar hjálpaði hún Peter Anton Schleisner að útrýma ginklofanum í Vestmannaeyjum. Sólveig gengdi því starfi allt til ársins 1867 en þá fékk hún starf sem ljósmóðir í Reykjavík og gengdi því allt til dauðadags. Sólveig var giftist árið 1845 honum Matthíasi Markússyni, trésmið í Vestmannaeyjum. Sólveig lést árið 1886 í Reykjavík. Ein dóttir hennar er móðir herra Ásgeirs Ásgeirssonar fyrrverandi forseta Íslands.
Leiðin til náms
Haustið 1842 hélt hún Sólveig til Kaupmannahafnar til að nema ljósmóðurfræði. Hafði hún fengið undanþágu en skilyrði til þess að mega fara í skólann voru að konan væri gift og ætti barn. En brýn nauðsyn var á að fá ljósmóður til Vestmannaeyja þannig að henni var gefið undanþágu. Hún fékk styrki frá bæði íslenskum og dösnkum yfirvöldum.
Að loknu námi
Árið 1843 lýkur Sólveig náminu og kemur heim til að taka við ljósmæðrarstarfinu, aðeins 22 ára að aldri. Þar biðu hennar mörg vandamál því Ginklofinn var mikill á þessum tíma. En árið 1874 kom læknirinn [[Peter Anton Schleisner] til Vestmannaeyja með það markmið að útrýma Ginklofanum. Var þá stofnað fæðingarheimili og með hjálp Sólveigar tókst á fáum árum að næstum útrýma sjúkdómnum. Schleisner fór aftur til Danmerkur árið 1848 og var þá fæðingarstofan flutt á heimili Sólveigar, en hún hafði gifst þremur árum áður honum Matthíasi Markússyni, trésmið. Þegar Schleisner var farinn varð læknistlaust um tíma í Vestmannaeyjum og sá þá Sólveig um læknisþjónustu í Vestmannaeyjum. Það var svo árið 1867 að Sólveig var sett ljósmóðir í Reykjavík og hún gengdi því alveg til dauðadags.