Sigríður Pétursdóttir (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júlí 2012 kl. 07:54 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júlí 2012 kl. 07:54 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Pétursdóttir í Ólafshúsum, fæddist í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum 30. ágúst 1830 og lézt í Ólafshúsum 26. desember 1903.
Foreldrar hennar voru bóndahjónin Pétur Ólafsson og seinni kona hans Ólöf Guðlaugsdóttir.

Maður Sigríðar var Sigurður Sigurðsson bóndi, f. í Búðarhóls-Austurhjáleigu 6. ágúst 1833, d. 29. október 1885.
Þau Sigurður bjuggu í Búðarhóls-Austurhjáleigu 1857-1869 og í Kúfhóli frá 1869-1885, en Sigríður bjó þar áfram til ársins 1886.
Hún fluttist til Eyja og var í skjóli Elínar dóttur sinnar og Jóns Bergs í Ólafshúsum og lézt þar 1903.
Börn þeirra Sigurðar voru:

  1. Ólafur námumaður í Winterquarters í Utah, f. 1859, d. 1911;
  2. Guðný húsfreyja í Spanish Fork, f. 1860, d. 1934;
  3. Vigfús sjómaður og verkamaður á Hóli í Norðfirði, f. 1862, d. 1937, kvæntur Stefaníu Guðjónsdóttur, síðar í Háagarði. Þau voru fósturforeldrar Þorsteins Þ. Víglundssonar;
  4. Ólöf, f. 1864, d. 1864;
  5. Elín, f. 1865, d. 1906, húsfreyja í Ólafshúsum, gift Jóni Bergi Jónssyni eldri, - fyrri kona hans;
  6. Steinunn, f. 1867, húsfreyja í Oddakoti í A-Landeyjum, Lambhaga og Þingeyri, kona Jóns Jónssonar á Þingeyri;
  7. Sigurður formaður í Frydendal, sambýlismaður Önnu Sigríðar Árnadóttur, f. 1869, drukknaði 1912;
  8. Pétur skósmiður á Seyðisfirði, f. 1871, d. 1941;
  9. Sigríður húsfreyja í Lambhaga, f. 1874, d. 1962, gift Guðmundi sjómanni í Lambhaga.

Heimildir

  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Pers.