Sigríður Sigurðardóttir (Lambhaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júlí 2012 kl. 17:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2012 kl. 17:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigríður Sigurðardóttir''' húsfreyja í Lambhaga, fæddist á Kúfhóli í A-Landeyjum 26. júlí 1874 og lézt 15. ágúst 1962.<br> Foreldrar hennar voru Sigurðu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja í Lambhaga, fæddist á Kúfhóli í A-Landeyjum 26. júlí 1874 og lézt 15. ágúst 1962.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson bóndi á Kúfhóli, f. 1833 og kona hans Sigríður Pétursdóttir, f. 1830. Þau voru einnig foreldrar Steinunnar Sigurðardóttur húsfreyju á Þingeyri, Elínar Sigurðardóttur húsfreyju í Ólafshúsum, fyrri konu Jóns Bergs eldri útvegsbónda. Þá voru þau foreldrar Sigurðar Sigurðssonar formanns í Frydendal, sambýlismanns Önnu Sigríðar Árnadóttur móður Johnsensbræðra.
Þau voru og foreldrar Vigfúsar fósturföður Þorsteins Þ. Víglundssonar.
Maki I (barnsfaðir): Guðni Þórðarson bóndi á Ljótarstöðum í A-Landeyjum, f. 7. júní 1854, d. 18. júlí 1910, um skeið búsettur í Eyjum, Frydendal, Götu og Garðhúsum.
Barn: Ólína Guðnadóttir, f. 9. apríl 1900, d. 22. febrúar 1922.
Maki II (eiginmaður): Guðmundur Guðmundsson sjómaður í Lambhaga, f. 1874, drukknaði 10. janúar 1912. Barn þeirra var Sigríður Lilja Guðmundsdóttir, f. 30. ágúst 1911. Sigríður var í Lambhaga 1920 með dóttur sinni Sigríði Lilju.


Heimildir

  • Manntal 1920.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.