Grétar Þorgilsson (Grund)
![](/images/thumb/6/6b/Gretargilsamedludu1970.jpg/250px-Gretargilsamedludu1970.jpg)
Grétar Þorgilsson fæddist 19. mars 1926 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Þorgils Þorgilsson og Lára Kristmundsdóttir. Grétar var í miðjunni á fimm barna systkinahópi. Kona Grétars er Þórunn Pálsdóttir og eiga þau fimm börn.
Þegar Grétar var 16 ára gamall valdi hann að fara á sjó á Erlingi sem Sighvatur Bjarnason var með. Hann var eftir það meira og minna á sjó langt fram eftir ævinni.
Grétar er góður söngmaður og þykir gaman að taka lagið.