Torfi Einarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2011 kl. 11:14 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2011 kl. 11:14 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Torfi ásamt börnum sínum

Torfi Einarsson, Áshól, fæddist 17. janúar 1889 að Varmahlíð undir Eyjafjöllum og lést 30. október 1960. Kona hans var Katrín Ólafsdóttir úr Mýrdal. Þau áttu fjögur börn, en Katrín lést þegar þau öll voru ung. Það féll því í hendur Torfa að ala upp börnin. Börnin voru Ása, Einar, Björgvin og Þórarinn. Þórarinn var sá eini sem ílengdist í Eyjum, hin fluttu til Reykjavíkur. Ekki var foreldramissir Torfa ókunnur, því faðir Torfa lést þegar Torfi var í vöggu. Torfi og fjölskylda bjuggu á Áshól við Faxastíg.

Hann hóf 15 ára sjómennsku frá Eyjafjallasandi. Árið 1912 fór Torfi til Vestmannaeyja og var þar sjómaður á hinum ýmsu bátum þar til hann hóf formennsku á Erni. Eftir það er Torfi formaður á Happasæl, Ingólfi og Gammi allt til ársins 1940. Þá fór hann í land og vann við fiskvinnslu í frystihúsunum. Torfi var dugmikill og vann eftir því sem þurfti í landi eða á sjó.



Heimildir

  • Einar J. Gíslason. Torfi Einarsson Áshól. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1961. 10. árg.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.