Blik 1940, 7. tbl./Skólavísur
- Skólavísur.
Í sambandi við fundi Málfundafélags Gagnfræðaskólans hafa nemendur skemmt sér við að botna vísur. Hér birtast nokkrar, sem orðið hafa til á þennan hátt og blaðinu hafa borizt frá „botnahirði“ skólans:
- Fölna runnar, falla strá.
- Feykir vindur köldum snjá.
- Tíminn líður. Tökum á!
- Takmarkinu skulum ná.
- Fölna runnar, falla strá.
- Á málfundum er mikið fjör,
- margt ber þar á góminn.
- Þar meyjar brýna mærðarhjör
- og Mundi bassaróminn.
- Á málfundum er mikið fjör,
- Á málfundum er mikið fjör,
- margt ber þar á góma.
- En sumir koma fýluför
- formanni til sóma.
- Á málfundum er mikið fjör,
- Mætir þú á málfundi,
- munt þú gott af hljóta.
- Þar Dollý svarar Sigmundi
- um söguburði ljóta.
- Mætir þú á málfundi,