Blik 1980/„Hvanneyrarstrákarnir“

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. maí 2010 kl. 20:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. maí 2010 kl. 20:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit


„Hvanneyrarstrákarnir“

Mig langar til að biðja Blik mitt að geyma fyrir mig þessa mynd af okkur Hvanneyrarstrákunum, sem stunduðu nám í fyrsta bekk bændaskólans veturinn 1917-1918.

Bændaskólinn á Hvanneyri minntist 90 ára starfs síns hinn 24. júní á s. l. ári. Þá gat ég um leið minnzt þess, að 60 ár voru liðin, síðan ég lauk þar búfræðiprófi.

Aftasta röð frá vinstri:

  1. Ólafur Gíslason frá Miðhvammi í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Kraunastöðum í s.s. Dáinn.
  2. Þorsteinn Davíðsson frá Fjósatungu í Fnjóskadal. Hann var verksmiðjustjóri Skinnaverksmiðjunnar Iðunnar á Akureyri um árabil og skógarvörður Vaglaskógar.
  3. Arngrímur Kristjánsson frá Sigríðarstöðum í S.-Þingeyjarsýslu. Hann var kunnur skólastjóri í Reykjavík um árabil. Dáinn.
  4. Stefán Ólafsson frá Kalmanstungu í Borgarfirði. Síðar bóndi þar. Dáinn.
  5. Kristófer Ólafsson frá Kalmannstungu, bróðir Stefáns. Síðar bóndi þar. Dvelst nú í Rvk.
  6. Sigfús Elíasson frá Uppsölum í Barðastrandarsýslu. Síðar rakarameistari og rithöfundur. Dáinn.
  7. Björn Ólafsson frá Spákonufelli í A. -Húnavatnssýslu. Dáinn.
  8. Gunnar Sveinsson frá Hamri í Dalasýslu. Dáinn.
  9. Þorlákur Björnsson frá Björk í Árnessýslu. Hann hefur dvalizt mörg ár í Kanada. Dvelst þar nú á elliheimili.


Miðröð frá vinstri:

  1. Þrándur Indriðason frá Ytra-Fjalli í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Aðalbóli í s.s. Dáinn.
  2. Magnús Hákonarson frá Stað í Barðastrandarsýslu. Var bóndi á Ósi í N.-Ísafjarðarsýslu. Dáinn.
  3. Jón Friðriksson frá Kraunastöðum í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Hömrum í s.s.
  4. Þ.Þ. V.
  5. Sigmundur Halldórsson frá Gröf á Snæfellsnesi. Síðar húsasmíðameistari í Reykjavík. Dáinn.


Fremsta röð frá vinstri:

  1. Jón Hákonarson frá Stað í Barðastrandarsýslu. Síðar verkamaður í Reykjavík. Dáinn.
  2. Þorlákur Guðmundsson frá Gufudal í Barðastrandarsýslu. Síðar skipstjóri í Ameríku.
  3. Þórður Hafliðason frá Bakka í N.-Ísafjarðarsýslu. Dáinn.
  4. Ísak Jónsson frá Gilsárteigi í S.-Múlasýslu. Síðar kunnur skólastjóri í Reykjavík. Dáinn.
  5. Áskell Sigurjónsson frá Sandi í S.-Þingeyjarsýslu. Bóndi á Litlu-Laugum í s.s.
  6. Jóhannes Guðjónsson frá Arnarstöðum á Snæfellsnesi. Síðar bóndi á Saurum í s.s. Dáinn.
Þ.Þ.V.