Blik 1969/Skaftfellskar myndir
Skaftfellskar myndir
Segja má með sanni, að Blik hafi haft nokkurt gengi og átt ærinni hamingju að fagna með Vestur-Skaftfellingum. Til þess að sýna þakklæti sitt í verki fyrir ánægjuna af skaftfellskum kynnum, birtir ritið nú nokkrar myndir frá liðnum tímum í sýslunni. Jafnframt er þess beiðzt, að vinir ritsins þar austur í sýslunni vestri taki viljann fyrir verkið.
Ritið færir Vestur-Skaftfellingum hlýjar þakkir fyrir skýringar og aðra aðstoð við birtingu myndanna.
Páll Jónsson, klausturhaldari
Einn af kunnustu sveitarhöfðingjum Vestur-Skaftfellinga um og eftir aldamótin 1800 var Páll Jónsson, klausturhaldari á Kirkjubæjarklaustri. Með því að þessi mynd af honum féll Bliki í skaut, finnst okkur rétt að geta hér afkomenda
klausturhaldarans, þar sem afkomendur hans sumir eru búsettir hér í Eyjum.
Foreldrar klausturhaldarans voru Jón bóndi Snjólfsson að Fljótum í Meðallandi og kona hans, Hallgerður Ólafsdóttir frá Steinsmýri.
Páll Jónsson var nálega 30 ár klausturhaldari Kirkjubæjarklausturs og 19 ár „spítalahaldari“ á Hörgslandi. Hann var jafnan talinn búhöldur góður.
Fyrri kona Páls klausturhaldara var Valgerður Þorgeirsdóttir frá Arnardrangi.
Synir þeirra voru:
1. Þorgeir stúdent
2. Séra Ólafur í Eyvindarholti
3. Séra Ásgrímur í Stóra-Dal.
Seinni kona Páls klausturhaldara var Ragnheiður Guðmundsdóttir frá Leirvogstungu. Börn þeirra voru:
1. Séra Páll í Hörgsdal og prófastur í Vestur-Skaftafellssýslu. Kona hans var Matthildur Pálsdóttir.
2. Karítas, gift Brandi Jakobssyni á Vatnsenda.
3. Valgerður, gift Helga Bjarnasyni frá Sviðsholti.
Börn séra Páls í Hörgsholti eru talin vera 10. Þau eru þessi:
1. Sigríður, gift sér Þorvarði Jónssyni presti að Holti.
2. Ragnheiður, gift séra Þórkatli Eyjólfssyni á Staðastað.
3. Valgerður, gift séra Helga Sigurðssyni á Melum.
4. Guðný, gift Guðmundi bónda Guðmundssyni, Fossi á Síðu.
5. Magnús bóndi í Ytri-Skógum.
6. Ólafur alþingismaður á Höfðabrekku.
7. Páll trésmiður á Geirlandi.
8. Þorgerður, gift Brynjólfi Brynjólfssyni, Hvammi í Mýrdal.
9. Jón trésmiður í Kvígindisdal.
10. Matthildur, gift Finnboga hreppstjóra Einarssyni í Þórisholti í
Mýrdal. Sonur þeirra hjóna er Matthías Finnbogason að Litlhólum hér í bæ.