Blik 1974/Gæfan elti góða drengi, erindi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. september 2009 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. september 2009 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Blik 1974/Gæfan elti góða drengi, erindi“ [edit=sysop:move=sysop])
Fara í flakk Fara í leit

Oddgeir Kristjánsson, hinn mikli tónlistarsnillingur okkar Eyjamanna, hafði nemendur mína að mestum hluta í hljómsveit sinni, Lúðrasveit Vestmannaeyja. Eitt sinn, er hljómsveitin hafði leikið fyrir okkur af list sinni, lá þetta erindi í hugskoti mínu:


Gæfan elti góða drengi,
glaða og reifa á listavengi;
þeim sé menntin máttur hreinn.
Blási þeir í lúðra lengi,
list þeirra svo enginn rengi;
hinn mesti sómi Eyja einn.
Þ. Þ. V.