Akur (Kornræktarsvæði)
Akur var austur af Eystri–Gjábakka, niðri á Urðum. Ekki er ljóst, hvort örnefnið er fornt og gæti stafað frá þeim tíma, þegar kornyrkja var stunduð. Abel sýslumaður (1821-1839 og 1840-1852) reyndi kornyrkju þar um 1840, og gæti nafnið verið þaðan komið. Heimildir telja þó líklegt, að nafnið sé fornt. Þjóðsagan um Akurdrauginn tengist örnefninu.
Heimildir
- Örnefni í Vestmannaeyjum. Reykjavík. Hið íslenzka þjóðvinafélag, 1938.
- Blik 1936, 3. tbl. undir „Þjóðsagnir úr Eyjum.“
- Saga Vestmannaeyja, I. bindi. Sigfús M. Johnsen. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.