Brautarholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júlí 2007 kl. 19:50 eftir Helga (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júlí 2007 kl. 19:50 eftir Helga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Brautarholt

Húsið Brautarholt var portbyggt timburhús, byggt árið 1908 af Jóni Jónssyni frá Dölum, síðar sjúkrahúsráðsmanni, og stóð við Landagötu 3b. Jón var ævinlega kenndur við Brautarholt en hann andaðist í hárri elli og var síðustu æviár sín elsti borgari Vestmannaeyja. Húsið fór undir hraun.

Gosnóttina bjuggu þar hjónin Gunnar Árnason og Kristín Valtýsdóttir ásamt börnum sínum Árna Þór og Ástu Sigrúnu. Einnig bjuggu í húsinu Helga Tómasdóttir og börn hennar Gunnar Már og Sólveig Eva Hreinsbörn.

Börn í garðinum á Brautarholti.



Heimildir