Sigurjón Auðunsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 16:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 16:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Svea Norman og Sigurjón.

Sigurjón Auðunsson fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu 4. apríl 1917 og lést 20. febrúar 2004.
Foreldrar hans voru Auðunn Oddsson og Steinunn Sigríður Gestsdóttir.
Sigurjón var með foreldrum sínum í Skálmarbæ í Álftaveri 1918, á Snæbýli í Skaftártungu 1918-1919, hjá þeim í Reykjavík 1919-1924, í Eyjum 1924 og lengur. Hann var formaður í Eyjum 1940. Verkstjóri var hann lengi, um skeið hjá Bæjarútgerðinni og lengi hjá Ísfélaginu. Hann þótti reglusamur, með gott verksvit og skipulag og dugandi í hverju starfi.
Hann átti fjögur systkini, þau Gest, Harald, Bárð og Magneu Ernu.

Kona Sigurjóns var Sigríður Nikulásdóttir, f. 18. júlí 1914. Þau bjuggu í Haukabergi við Vestmannabraut og á Austurveg 20. Síðast bjó Sigurjón í Kópavogi.
Börn þeirra Sigríðar voru Gylfi, Aðalsteinn og Ingibjörg.


Heimildir

  • Björn Magnússon. Vestur-Skaftfellingar.
  • Pers.