Sigurður Guðmundsson (bonn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 14:21 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 14:21 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sigurður Guðmundsson


Sigurður Guðmundsson, betur þekktur sem Siggi bonn, var fæddur að Hlíðarhúsi 10. apríl 1858. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson og Sigríður Jónsdóttir. Hann lést 27. júní 1911, þá skráður á sveit í Svaðkoti, aðeins 53 ára gamall.

Viðurnefni hans, bonn, er líklegast dregið af franska lýsingarorðinu bon, sem þýðir góður, eða kvenkynsmyndinni bonne, sem er borin fram bonn. Á hans árum var mikið um franskar skútur og skútukarla hér við land og var mikið mælt á frönsku (golfrönsku) í hverju sjávarplássi í viðskiptum við Frakkana. Má það vel vera að frönsku skútukarlarnir hafi byrjað að kalla hann þessu viðurnefni eins og það er þekkt í dag. Einnig er talið að hann hafi búið í húsinu Bonn og hafi þannig fengið viðurnefni sitt.

Siggi samdi vísur, en oft þótti það ekki mikill skáldskapur á þeim tíma. Ein best þekkta vísa hans, sem var gjarnan sungin undir alkunnu sálmalagi á Þjóðhátíð hér áður fyrr, er Til hákarla:

Til hákarla í Vestmannaeyjum
fara þeir norðan gaddi í.
Hálfkaldir koma þeir að landi,
upp á Vertshúsið skunda þeir.
Sína sjóblauta vettlinga
verða þeir setja upp grútuga.

Heimildir

  • Heimaslóð og Siggi bonn, bls. 63-65. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1973-1974. 23.-24. árg.