Hannes Haraldsson (yngri)
Hannes Haraldsson yngri, stýrimaður á Herjólfi fæddist 3. febrúar 2003.
Foreldrar hans Haraldur Hannesson rafvirki, f. 2. október 1968, og kona hans Anna Ólafsdóttir húsfreyja, sjúkraþjálfari, f. 28. október 1971.
Börn Önnu og Haraldar:
1. Baldur Haraldsson, tölvufræðingur, f. 14. júní 1997 í Eyjum.
2. Hannes Haraldsson, stýrimaður á Herjólfi, f. 3. febrúar 2003. Sambúðarkona hans Birgitta Dögg Óskarsdóttir.
3. Ólafur Már Haraldsson, nemi í Framhaldsskólanum, f. 14. júní 2007.
Þau Birgitta Dögg hófu sambúð, hafa eignast eitt barn. Þau búa viðKirkjuveg.
I. Sambúðarkona Hannesar er Birgitta Dögg Óskarsdóttir húsfreyja, leikskólastarfsmaður, f. 14. september 1998.
Barn þeirra:
1. Haraldur Þór Hannesson, f. 11. febrúar 2025.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bylgja Dögg.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.