Davíð Helgason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. mars 2025 kl. 16:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. mars 2025 kl. 16:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Davíð Helgason“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Davíð Helgason kerfisfræðingur fæddist 19. nóvember 1981.
Foreldrar hans Helgi Hermannsson vélstjóri, tónlistarmaður, skólastjóri, verslunarmaður, f. 27. febrúar 1948, og Þórdís Bjarney Jóhannsdóttir húsfreyja, ritari, gjaldkeri, bankastarfsmaður, f. 31. október 1952.

Barn Þórdísar og Georgs Þórs Kristjánssonar:
1. Lilja Georgsdóttir hárgreiðslukona á Selfossi, f. 15. febrúar 1970. Fyrrum unnusti Romano Phernambucq. Sambúðarmaður Lilju Þórhallur Birgisson.
Börn Þórdísar og Helga Hermannssonar:
2. Jónas Helgason kjötiðnaðarmaður á Hvolsvelli, f. 14. apríl 1971. Ókvæntur.
3. Davíð Helgason kerfisfræðingur í Reykjavík, býr á Selfossi, f. 19. nóvember 1981.

Þau Helena Björk hófu sambúð, hafa ekki eignast börn. Þau búa á Selfossi.

I. Sambúðarkona Davíðs er Helena Björk Eiríksdóttir úr Keflavík, f. 20. mars 1988. Foreldrar hennar Eiríkur Heiðar Eiríksson, f. 19. janúar 1961, og Sigurlaug Hauksdóttir, f. 2. febrúar 1965.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.