Guðmundur Kristinn Axelsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. ágúst 2024 kl. 11:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. ágúst 2024 kl. 11:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðmundur Kristinn Axelsson''', sjómaður, bifreiðastjóri fæddist 24. ágúst 1928 og lést 19. október 1997.<br> Foreldrar hans voru Axel Vendel Guðmundsson, bifreiðastjóri, f. 6. desember 1900, d. 8. júlí 1960, og kona hans Anna Guðmundsdóttir, f. 4. ágúst 1908, d. 16. júlí 1991.<br> Guðmundur ólst að mestu leyti upp hjá móðurforeldrum sínum, þeim Guðmundi Sigurðssyni, kaupmanni og konu hans Þórönnu Þorsteinsdóttur. Þau Dýrfinna giftu sig...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Kristinn Axelsson, sjómaður, bifreiðastjóri fæddist 24. ágúst 1928 og lést 19. október 1997.
Foreldrar hans voru Axel Vendel Guðmundsson, bifreiðastjóri, f. 6. desember 1900, d. 8. júlí 1960, og kona hans Anna Guðmundsdóttir, f. 4. ágúst 1908, d. 16. júlí 1991.
Guðmundur ólst að mestu leyti upp hjá móðurforeldrum sínum, þeim Guðmundi Sigurðssyni, kaupmanni og konu hans Þórönnu Þorsteinsdóttur.

Þau Dýrfinna giftu sig 1949, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Orrastöðum í Húnavatnssýslu og í Rvk. Þau fluttu til Eyja 1976, bjuggu á Skaftafelli við Vestmannabraut 62. Guðmundur bjó síðar að Áshamri 30.
Dýrfinna lést 1992 og Guðmundur 1997.

I. Kona Guðmundar, (8. september 1949), var Dýrfinna J. Valdimarsdóttir, húsfreyja, f. 1. maí 1931, d. 22. júní 1992.
Börn þeirra:
1. Þóranna Guðmundsdóttir, f. 21. janúar 1949.
2. Valdimar Guðmundsson, f. 24. júní 1950.
3. Stefán Valdimarsson, f. 4. janúar 1953, d. 6. júní 1994.
4. Axel Guðmundsson, f. 21. desember 1956.
5. Hafsteinn Guðmundsson, f. 19. ágúst 1963.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.