Eygló Guðmundsdóttir (Hákonarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júlí 2024 kl. 14:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júlí 2024 kl. 14:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Eygló Guðmundsdóttir (Hákonarhúsi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Eygló Guðmundsdóttir, frá Hákonarhúsi, húsfreyja, aðstoðarkona hjá tannlækni, fæddist 17. apríl 1956 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Kristján Hákonarson sjómaður, húsasmiður, f. 20. september 1915 í Merkinesi í Höfnum, Gull., d. 4. febrúar 2006, og kona hans Halldóra Kristín Björnsdóttir húsfreyja, f. 3. apríl 1922 í Víðidal, d. 13. október 2021 í Hraunbúðum.

Börn Halldóru og Guðmundar:
1. Björn Bjarnar Guðmundsson, f. 11. nóvember 1941 á Kirkjuvegi 88, d. 11. október 2015. Fyrrum kona hans Þórey Þórarinsdóttir, fyrrum kona hans Aðalheiður Ósk Sigurðardóttir. Kona hans Erna Guðmundsdóttir.
2. Halldór Ingi Guðmundsson, f. 14. október 1946 á Kirkjuvegi 88. Kona hans Anna Þóra Einarsdóttir.
3. Guðmundur Guðmundsson, f. 12. október 1950 á Sjúkrahúsinu. Kona hans Sigríður Stefánsdóttir.
4. Ólafur Guðmundsson, f. 27. janúar 1952 á Kirkjuvegi 88. Kona hans Valgerður Karlsdóttir.
5. Eygló Guðmundsdóttir, f. 17. apríl 1956 að Kirkjuvegi 88. Maður hennar Ágúst Erlingsson, sambúðarmaður hennar Heimir Freyr Geirsson.
6. Bjarni Ólafur Guðmundsson, f. 10. febrúar 1963 á Sjúkrahúsinu. Kona hans Guðrún Marý Ólafsdóttir.
7. Þröstur Guðmundsson, f. 17. janúar 1965 á Kirkjuvegi 88.

Þau Ágúst giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Heimir Freyr hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau skildu.

I. Maður Eyglóar, skildu, var Ágúst Erlingsson, þungavinnuvélastjóri, slökkviliðsmaður, f. 4. október 1954, d. 25. september 2018.
Börn þeirra:
1. Erling Adolf Ágústsson auglýsingasali í Reykjavík, f. 30. apríl 1974. Kona hans Hlín Elfa Birgisdóttir.
2. Halldóra Kristín Ágústsdóttir fasteignasali í Eyjum, f. 11. febrúar 1878. Maður hennar Sverrir Örn Sveinsson.

II. Fyrrum sambúðarmaður Eyglóar er Heimir Freyr Geirsson, sjómaður, f. 1. júní 1963.
Börn þeirra:
3. Valur Smári Heimisson, f. 17. mars 1987 í Rvk.
4. Sæþór Freyr Heimisson, f. 15. febrúar 1991 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.