Sigurbjörg Jónsdóttir (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2024 kl. 11:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2024 kl. 11:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigurbjörg Jónsdóttir''', kennari í Eyjum fæddist þar 18. nóvember 1964.<br> Foreldrar hennar Jón Valgarð Guðjónsson, sjómaður, skipstjóri, f. 8. október 1931, d. 28. nóvember 2005, og kona hans Guðlaug Sigríður Gunnarsdóttir, húsfreyja, talsímakona, f. 23. júlí 1939. Barn Guðlaugar og Þorvaldar Lárussonar:<br> 1. Ásdís Þorvaldsdóttir, f. 6. maí 1956 að Hvítingavegi 12. Maður hennar Arnfinnur V. Hansen.<br> Börn Guðlaugar og...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Jónsdóttir, kennari í Eyjum fæddist þar 18. nóvember 1964.
Foreldrar hennar Jón Valgarð Guðjónsson, sjómaður, skipstjóri, f. 8. október 1931, d. 28. nóvember 2005, og kona hans Guðlaug Sigríður Gunnarsdóttir, húsfreyja, talsímakona, f. 23. júlí 1939.

Barn Guðlaugar og Þorvaldar Lárussonar:
1. Ásdís Þorvaldsdóttir, f. 6. maí 1956 að Hvítingavegi 12. Maður hennar Arnfinnur V. Hansen.
Börn Guðlaugar og Jóns Valgarðs:
2. Marta Jónsdóttir starfsmaður á leikskóla, f. 1. febrúar 1959 á Hvítingavegi 12. Maður hennar Gústaf Ólafur Guðmundsson.
3. Gunnar Jónsson, f. 10. ágúst 1960, d. 23. maí 1970.
4. Guðjón Valur Jónsson, f. 2. október 1962 að Bárugötu 6, d. 26. mars 1963.
5. Sigurbjörg Jónsdóttir kennari í Eyjum, f. 18. nóvember 1964. Maður hennar Gunnar Þór Friðriksson.

Þau Gunnar Þór giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Hrauntún 3.

I. Maður Sigurbjargar er Gunnar Þór Friðriksson, sjómaður, skipstjóri, f. 17. mars 1964. Foreldrar hans Friðrik Jensen, verkstjóri, f. 25. apríl 1936, d. 28. október 2017, og kona hans Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, húsfreyja, f. 9. september 1944.
Börn þeirra:
1. Guðlaug Sigríður Gunnarsdóttir, f. 1. maí 1990.
2. Ásgeir Gunnarsson, f. 15. september 1993.
3. Kristberg Gunnarsson, f. 20. júní 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.